Iða Ósk
Búð · ÁskriftShop · Subscription

Um verkefniðAbout the project

Hver man ekki eftir því að fyllast eftirvæntingu við að fá bréf stíluð á sig í gegnum póstlúguna, en nú eru einu bréfin sem læðast inn annaðhvort ruslpóstur eða ógreiddir reikningar.Remember the little thrill of a letter with your name on it landing on the doormat? These days, the only post that slips through is junk mail and bills.

Sniglapóstur er gerður til að lífga upp á hversdagsleikann og draga okkur úr litskrúðugum símanum yfir í okkar raunverulega umhverfi. Hví ættum við ekki svo að lita það líka með list og ljóðum.Sniglapóstur (snail mail) is here to brighten the everyday and pull us away from our glowing screens, back into the world around us. And why not fill that world with a little art and poetry too?

Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri og rými til að dúlla mér í ljóðum og myndskreytingum. Í þessari póst áskrift svokallaðri, sendi ég frá mér allskonar í hverjum mánuði, kjarninn verður þó alltaf ljóð og myndskreyting en hver veit hvað meira mun leynast inn á milli.Nothing makes me happier than having the time and space to lose myself in poems and drawings. Each month I'll send out a little bundle of something. At its heart there will always be a poem and an illustration, but who knows what else might be tucked in between.

GjöfGift

Gefðu SniglapóstGive Snail Mail

Gjafaáskrift er greidd einu sinni og bréfin berast mánaðarlega í 3, 6 eða 12 mánuði, beint í póstlúgu þess sem fær gjöfina.A gift subscription is paid once, and the letters arrive every month for 3, 6 or 12 months, straight through the recipient's letterbox.

Tvö gul umslög frá Sniglapósti, annað lokað og hitt opið með handmáluðu bréfi / Two yellow Sniglapóstur envelopes

GjafabréfGift card

Hér máttu skrifa á gjafabréfið sem viðtakandinn fær sent til að setja undir tréð. Þetta er valfrjálst — þú mátt sleppa reitunum.You can write on the gift card that will be sent to the recipient to put under the tree. This is optional — you can leave the fields blank.

0 / 400

3 mánuðir3 months

3.990 kr.3,990 ISK

Þrjú bréfThree letters

Gefa 3 mánuðiGive 3 months

12 mánuðir12 months

12.500 kr.12,500 ISK

Tólf bréf, heilt árTwelve letters, a whole year

Gefa 12 mánuðiGive 12 months

Gjafir má senda hvert sem er í heiminum — þú velur sendingarsvæði í greiðsluforminu.Gifts can be sent anywhere in the world — you choose the shipping area in the payment form.

Jólagjöf? Pantaðu í síðasta lagi 15. des. til að fá gjafabréfið í pósti, eða 23. des. til að fá það sem PDF í tölvupósti.A Christmas present? Order by 15 Dec. to get the gift card by post, or by 23 Dec. to get it as a PDF by email.

Algengar spurningar

Hvernig virkar Sniglapóstur?

Sniglapóstur er ljóðaáskrift í pósti. Í hverjum mánuði sendi ég þér frímerkt bréf í umslagi, beint inn um lúguna. Kjarninn er alltaf ljóð og myndskreyting eftir mig, en hver veit hvað fleira leynist inn á milli.

Hvenær kemur fyrsta bréfið?

Fyrsta bréfið fer í póst um næstu mánaðarmót eftir að þú skráir þig, og svo kemur nýtt bréf í hverjum mánuði á meðan áskriftin er virk.

Hvað kostar áskriftin og sendir þú til útlanda?

Innanlands kostar Sniglapóstur 990 kr. á mánuði eða 10.500 kr. á ári, og sendingarkostnaður er innifalinn. Já, ég sendi líka til útlanda: innan Evrópu kostar áskriftin 1.100 kr. á mánuði eða 11.660 kr. á ári, og utan Evrópu 1.350 kr. á mánuði eða 14.350 kr. á ári. Þú velur leiðina í greiðsluforminu.

Hvernig virkar gjafaáskrift?

Þú greiðir einu sinni fyrir 3, 6 eða 12 mánuði (3.990 kr., 6.950 kr. eða 12.500 kr.) og bréfin berast mánaðarlega beint til þess sem fær gjöfina. Í greiðsluforminu seturðu inn þínar upplýsingar og velur svo að senda á annað heimilisfang, þar sem þú skráir nafn og heimilisfang þess sem fær gjöfina. Gjafir má senda hvert sem er í heiminum: þú velur eitt sendingarsvæði (Ísland, innan Evrópu eða utan Evrópu) í greiðsluforminu. Innan Evrópu kostar gjöfin 4.400, 7.700 eða 14.300 kr. og utan Evrópu 5.400, 9.450 eða 17.550 kr. (3, 6 eða 12 mánuðir).

Endurnýjast gjafaáskriftin?

Nei. Gjafaáskrift er greidd einu sinni og endurnýjast ekki sjálfkrafa, svo ekkert er innheimt eftir að gjafatímabilinu lýkur. Ef viðtakandinn vill halda áfram að fá bréf getur hann skráð sig í áskrift hér á síðunni.

Get ég gefið Sniglapóst í jólagjöf?

Svo sannarlega! Áður en þú greiðir geturðu skrifað Til, Frá og kveðju á gjafabréf sem viðtakandinn fær sent til að setja undir tréð. Reitirnir eru valfrjálsir og þú mátt alveg sleppa þeim. Fyrir jólin: pantaðu í síðasta lagi 15. desember til að fá gjafabréfið sent í pósti, eða í síðasta lagi 23. desember til að fá það sem PDF í tölvupósti.

Hvernig greiði ég?

Þú greiðir með greiðslukorti hér á síðunni, á öruggu greiðsluformi frá Áskeli með greiðslumiðlun Teya. Staðfesting á kaupunum kemur í tölvupósti frá Áskeli.

Hvernig segi ég upp áskriftinni?

Þú getur sagt upp hvenær sem er með því að senda mér tölvupóst á [email protected]. Uppsögnin tekur gildi í lok tímabilsins sem er í gangi og eftir það er ekkert innheimt, en þú færð þau bréf sem tilheyra því tímabili. Nánar í skilmálunum.