Leiktu betur
Spunakeppni framhaldsskólanna, reglur keppninnar, undirbúningur og praktísk atriði fyrir skóla sem taka þátt.
Í hnotskurn
Leiktu betur er spunakeppni fyrir framhaldsskóla sem hefur verið haldin í 25 ár og er ein ástsælasta hausthefð framhaldsskólanema á Íslandi. Öllum framhaldsskólum landsins er boðin þátttaka. Kvöldið litast af gleði, gríni og hlátrasköllum í troðfullum sal í Tjarnarbíó ár eftir ár.
- Dagsetning
- Sunnudagur, 1. nóvember 2026
- Staður
- Tjarnarbíó, Reykjavík
- Liðsstærð
- 4 í liði + fyrirliði, allt að 2 til vara
- Hluti af
- Unglist, ungmennahátíð Hitt húsins
- Verðlaun
- Fyrir 1.–3. sæti kvöldsins
- Síðasti sigurvegari
- FG, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (2025)
Svona skráir skólinn sig
Engin formleg umsókn, skráning fer fram beint í gegnum samband við skipuleggjendur. Það er mikilvægt að láta okkur vita með góðum fyrirvara.
-
Hafið samband tímanlega
Sendið tölvupóst eða hringið til að láta vita að skólinn ykkar vilji taka þátt í Leiktu betur 2026, því fyrr því betra.
-
Veljið liðið ykkar
Sjá kaflann um undirbúning hér að neðan fyrir hugmyndir að því hvernig má velja í liðið.
-
Skilið inn upplýsingum
Sendið okkur nöfn keppenda og þjálfara, ásamt hópmynd af liðinu, hún fer meðal annars á Instagram-síðuna.
-
Byrjið að æfa sem fyrst
Farið yfir reglurnar og undirbúningsráðin hér að neðan með liðinu og hefjið æfingar tímanlega.
-
Mætið í Tjarnarbíó
Sunnudagskvöldið 1. nóvember 2026, hress og vel æfð.
Reglur keppninnar
Hver lota er viðureign tveggja liða: lið 1 og lið 2. Svona gengur hún fyrir sig, skref fyrir skref.
Orð dregið úr hatti
Orðið segir til um hvað spuninn á að fjalla um (það getur verið innblástur, vandamál sögunnar, staðsetning, heildarumfjöllunarefni eða hvað sem ykkur dettur í hug). Til dæmis: tómatsósu-spuni.
Lið 1 skorar á lið 2
Fyrirliði liðs 1 skorar formlega á lið 2 í spuna með orðinu sem dregið var.
Lið 2 velur stíl
Fyrirliði liðs 2 tekur áskoruninni og tilkynnir í hvaða stíl liðið ætlar að sýna spunann. Stíllinn getur verið hvað sem er (hann ákvarðar formið sem spuninn er sýndur í). Fyrirliðinn þarf að geta útskýrt stílinn í stuttu máli fyrir dómurum og áhorfendum áður en spuninn hefst.
Lið 2 sýnir spunann
Spuninn má að hámarki vara í 3 mínútur og þarf að hafa upphaf, miðju og endi.
Lið 1 svarar með sama orði
Þegar lið 2 hefur fengið stigin sín stígur lið 1 á svið og gerir sinn eigin spuna með sama orði, en fyrirliði þeirra tilkynnir sjálfur hvaða stíl liðið ætlar að nota, áður en þau byrja.
Sigurvegari lotunnar
Dómarar meta bæði atriðin og draga frá mínusstig ef við á. Stigahærra liðið vinnur lotuna.
Áskorunin, orðrétt
Svona hljóðar áskorunin og svarið á milli fyrirliða, orðrétt:
„Við skorum á ykkur í tómatssósu-spuna.“
„Við tökum þessari áskorun og gerum spunann í [stíll] stíl.“
Tímamörk og mínusstig
Hver spuni má að hámarki vara í 3 mínútur.
Fari liðið yfir 3 mínútur fæst 1 mínusstig fyrir hverja sekúndu umfram. Tíminn stoppar ekki fyrr en allir liðsmenn eru sestir í sætin sín.
Dómgæsla
Þrír dómarar gefa 1–5 stig í hverjum af eftirfarandi flokkum fyrir hvern spuna, fullt hús er því 15 stig, að frádregnum mínusstigum.
Nokkrir stílar
Nokkur dæmi um stíla sem lið hafa notað áður:
Þið megið líka búa til ykkar eigin stíla, en verðið að geta útskýrt þá fyrir dómurum og áhorfendum.
Undirbúningur
Fyrst og fremst viljum við að liðin treysti hvort öðru og séu góðir vinir þegar kemur að keppnisdeginum sjálfum. Það sem hér fer á eftir eru æfingaraðferðir sem gagnast liðinu bæði sem hópi og sem spinnurum.
Liðsheild fyrst
Liðið þarf að vera samtaka og skilja vel hvort annað. Góð leið til þess:
-
Góðir upphitunarleikir fyrir hverja æfingu.
-
Traustæfingar sem hópurinn gerir saman.
-
Skrítnar og kjánalegar æfingar.
-
Gerið eitthvað skemmtilegt saman utan æfinga (því betri vinir, því betra lið á sviðinu).
Æfið stílana ykkar
Æfið vel þá stíla sem ykkur finnst skemmtilegir, þeir gefa liðinu trausta formúlu til að byggja spunann á. Ef formúlan er góð skiptir engu máli hvaða orð er dregið á keppnisdaginn sjálfan.
Upphaf, miðja, endir
Æfið að nota strúktúrinn ykkur til hjálpar. Góð æfing: takið ævintýri sem allir þekkja og ákvarðið nákvæmlega hvað gerist í upphafinu, hvað í miðjunni og hvað í endann.
Grunnreglan: „Já, og …“
Spuni snýst um hlustun milli liðsfélaga. Grunnreglan er að hafna aldrei hugmyndum sem birtast á sviðinu (við tökum því sem sagt er sem sannleika og byggjum ofan á það).
„Og svo komu geimverur!“
„Já, og þær lentu beint fyrir framan húsið mitt!“
„Og svo komu geimverur!“
„Nei, það er ekkert að koma, sjáðu hvað Kalli er að gera í eldhúsinu.“
Skilgreinið strax
Reynið að koma eftirfarandi á framfæri á fyrstu 30 sekúndum spunans, svo áhorfendur, liðsfélagar og dómnefnd skilji nákvæmlega hvað er í gangi:
Ef grunnurinn er skýr má byggja allskonar vitleysu ofan á hann eftir það.
Við erum geimverur á Mars, tvíburar aðskildir í fæðingu sem hittast nú í fyrsta sinn en erum í orustu hvor á móti öðrum og reynum núna að stöðva bardagann.
Tveir berjast fyrir sitthvort liðið, vilja svo frið, verða kóngar í lokin... og þá loks kemur í ljós að þeir eru tvíbura geimverur.
Hvernig á að þjálfa liðið
Engin ein leið er réttari en önnur:
Borga fyrir þjálfun, við mælum með u.þ.b. 5 æfingum.
Fá einhvern með reynslu til að þjálfa t.d. úr áhugaleikhúsi í grenndinni, leiklistarnema eða leikara.
Fá nemanda í skólanum sem hefur áhuga á að þjálfa liðið sjálft.
Hvernig á að velja liðið
Veljið leið sem hentar því hversu margir í skólanum hafa áhuga á að taka þátt:
Vinahópar mynda lið og keppa sín á milli, vinningsliðið keppir svo fyrir hönd skólans í Leiktu betur.
Allir velkomnir að hoppa upp á svið og spinna með hverjum sem er, þjálfari fylgist með og velur liðið. Getur líka verið góð skemmtun fyrir þau sem horfa á.
Auglýst er eftir fólki sem hefur áhuga og skráir sig.
Haldnar eru litlar prufur í hópum.
Hvernig sem þið gerið það skiptir ekki höfuðmáli. Dettur ykkur betri leið í hug, endilega notið hana.
Praktísk atriði fyrir keppnisdaginn
Gott að hafa á hreinu áður en lagt er af stað í Tjarnarbíó.
Dagurinn sjálfur
-
Mæting og undirbúningur
Liðin mæta fyrr um daginn til að undirbúa sig fyrir kvöldið.
-
Sameiginleg upphitun
Öll liðin hita upp saman áður en kvöldið hefst.
-
Fjölmiðlar
Fjölmiðlar koma oft við og taka stöðuna á keppendum.
-
Matur
Keppendur fá tíma til að fara og fá sér að borða, einnig er aðstaða á staðnum fyrir þau sem koma með nesti.
-
Keppnin hefst
Sjálf keppnin byrjar kl. 20:00.
Sæti og skráning áhorfenda
Skólinn fær úthlutaðan ákveðinn sætafjölda í salnum, það er á ábyrgð skólans sjálfs að auglýsa skráningu fyrir sína nemendur.
Búningar
Hefð er fyrir því að keppnisliðið sé í búningi (hann má vera eins lítill eða stór og þið viljið). Nokkur dæmi um það sem lið hafa gert áður:
Þetta eru bara nokkur dæmi, ákvörðunin er tekin í sameiningu af liðinu og nefndinni.
Litaþema fyrir áhorfendur
Það er alltaf stemning að hvetja áhorfendur til að mæta í skólalitunum eða ákveðnu litaþema, svo skólinn standi út í stúkunni.
Spunaráðið
Þar sem það er bara einn dagur í Tjarnarbíó þarf að skipuleggja og græja mikið fyrir fram. Nefndarmeðlimum er boðið að taka þátt í svokölluðu spunaráði, sem undirbýr praktísku hlutina fyrir keppnina t.d. að safna orðum í hattinn og setningum frá áhorfendum.